Könnun Neytendastofu á skólamáltíðum grunnskóla

Eins og allar kannanir er þessi könnun ekkert frábrugðin.  Það er ekki hægt að taka mark á kostnaði, en eina sem hún segir er mismunandi hvernig skólar standa að mötuneytum.  Það kemur ekki fram hvort þú sért að greiða fyrir eina máltíð eða þrjár, þ.e. morgunmatur, hádegismatur eða síðdegiskaffi.  Hráefni er mis dýrt, sumir þurfa alltaf að hafa lúxus mat s.s. pizzur, kjúklingur og annað kjöt, þegar aðrir eru í þessum hefðbundna s.s. bollur, hakk, pítur og mjólkurgrautur. Hráefnið er því mismunandi valið milli skóla, hvort sé það verð eða gæði.  Mismunandi er hvernig lagt er mat á öðrum kostnaði s.s. greiðsluseðilsgjaldi, flutningi og vinnu starfsfólks.  Upphaflega við færslu grunnskóla yfir á sveitarfélögin þá greiddi Jöfnunarsjóður vinnuframlag til sveitarfélaga, en nemendur voru látinir bera kostnaðinn við hráefnið.  Ekki veit ég hvort þau sveitarfélög sem hafa sett upp mötuneyti hjá sér síðustu árin, séu með framlag frá Jöfnunarsjóði móti vinnu starfsfólks í mötuneytinu.  Það er þó staðreynd að þarna eru 124 skólar sem velja mismunandi hráefni og veita börnunum mis margar máltíðir á mismunandi verði með mismunandi mat á hvað teljist með hráefninu.  Við skulum samt vona að börnin komi ekki mjög svöng heim, nema við séum búin að gera þau matvönd og þá eigum við þátt í því.


mbl.is Tveir grunnskólar bjóða nemendum ókeypis máltíðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Emilía Höskuldsdóttir

Höfundur

Emilía Höskuldsdóttir
Emilía Höskuldsdóttir
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 133

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband